Bretti innan SKÍ.

Nú um helgina var haldið skíðaþing á Ísafirði sem myndi vanalega ekki vera frétt sem rataði inn á vef brettafelagsins en,

Nýverið var tekin sú ákvörðun að sótt yrði um aðgöngu í SKÍ, við viljum koma á framfæri að BFÍ átti engan þátt í umsókn um inngöngu í SKÍ.

Skíðaþing sóttu Friðbjörn Benediktsson frá Brettafélagi Akureyrar innan SKA , Jóhann Borgþórsson þjálfari í breiðablik og Viktor Hjartarsson þjálfari Brettafélag Akureyrar innan SKA

Á skíðaþingi var stofnuð fastanefnd innan SKÍ sem er fjórða fastanefnd SKÍ en í henni sitja Jóhann Borgþórsson, Viktor Hjartarson, Kristján Kristjánson (þjálfari Breiðablik) og var Friðbjörn Benediktsson kosinn inn í stjórn SKÍ og er 4 maður inn í fastanefnd

Fyrir þá sem hafa áhuga á því hvað verður og hvað er að gerast í snjóbrettaheimunum varðandi þetta má benda á t.d þennan áhugarverða hlekk eða þessi áhugaverðu samtök eða t.d þetta og svo þetta

Eflaust vakna margar spurningar hjá þeim sem hafa áhuga á framtíð snjóbretta á íslandi. Þar sem BFÍ tók engan þátt í umræðu eða ákvarðanartöku varðandi inngöngu í SKÍ báðum við um fund með þeim aðilum sem að þessu koma á höfuðborgarsvæðinu til þess að hvetja til opinnar umræðu og reyna að stuðla að því að snjóbretti á Íslandi  haldi áfram sama jákvæða andanum og hefur verið.

Svo má skoða lög SKÍ

 

kv BFÍ hagsmunasamtök snjóbrettamanna á íslandi

 

 

 

Hver man ekki eftir Sigló Session-inu?

AK-X

Nú er AK-Extreme afstaðið en eru ekki allir að fylgjast með hér myndir og video frá helginni að detta inn hægri vinstri !

Svo er spurning með Sigló síðustu helgina í Apríl en BFÍ er að hugsa málið á meðan við jöfnum okkur eftir AK-X ætlum svo að stefna á a.m.k eitt sumar gigg annað hvort í Kelló eða snæfó!

Jibb’N Skate

Þá er 3 jibb’n skate lokið með svo hljóðandi úrslitum

Jibb strákar 16+ Gunnar Viðar Gunnarsson
Jibb strákar 16- Sigfinnur Böðvarsson

Skate strákar 16+ Siggi Rosant
Skate strákar 16- Kristján Jónsson

Keppt var svo um titilinn Alheimsmeistari og stóð valið á milli Sigga Rosant og Begga Friðbjörns. í fyrstu var reynt að láta crowdid velja en þeir voru hníf jafnir þannig að úrslitinn réðust af æsispennandi keppni af Hnífur Blað skæri.

Uppboðið gekk vel og er komin dágóð summa sem er fyrsti hluti í styrkarsjóð sem settur verið upp í Nafni Arnars einsog áður hefur verið greint frá við mælum því með því að allir sem hafa áhuga á að sækja um í sjóðnum fari að safna í myndband og búa sér til umsókn en við auglýsum nánar allar reglur fljótlega. Styrkurinn verður ekki bundin við snjóbretti eða brimbretti heldur geta allir ungir jaðarsports iðkenndur sótt um.

Myndir og myndband koma fljótlega.

En BFÍ vill þakka öllum sem komu að þessu móti með okkur.

Jibb’n Skate á laugardag.

Jibb n’ Skate

Laugardaginn 31 mars verður hið árlega Jibb’n Skate haldið í bakgarði Nikita laugavegi 56.

Dagskrá er svo hljóðandi

14:00 Snjóbretta og Hjólabretta heat byrjar það verða tekin tvö heat og dómarar velja þá úr sem komast áfram í úrslit.

15:00 Pása, UPPBOÐ, tónlist, grill og gaman

15:40 Úrslita heat og verðlauna afhending.

Benni B-Ruff heldur uppi fjörinu!

1000kr skráningar gjald fyrir snjóbretti, 500kr fyrir skate, 1000kr ef keppt er í báðu.

Keppendur eru beiðnir um að mæta kl 12:00 þá byrjar session þar sem dómara velja hverjir komast áfram í sjálfa keppnina.

Skárning verður á staðnum kl. 12:15 Addi Intro tekur við skráningu í skate og Linda formaður BFÍ tekur við skráningu fyrir snjóbretti.

21:00 Afterski partý á BAR 11 verðlaun fyrir besta Afterski gallan.

Brettafélag Íslands 10 ára (Jibb´n skate) from ikorninn on Vimeo.

Jibb ´n Skate from Arnþór Tryggvason on Vimeo.

Nikita Jibb and Skate from Geiri on Vimeo.

Jibb’n Skate – 31.mars

Taktu daginn frá! (si. kl.12-16)

Laugardaginn 31.mars mun Brettafélagið í samstarfi við Nikita halda Jibb’n Skate í Nikita-bakgarðinum eins og síðustu tvö ár. Eins og í fyrra ætlum við að safna vörum fyrir uppboð og styrkja gott málefni. Í fyrra söfnuðum við dágóðri summu fyrir Pétur Kristján Guðmundsson en í ár ætlum við að setja upp sjóð í nafni Arnars sem lést fyrir 6 árum. Arnar hefði orðið 30 ára núna í desember og til þess að heiðra minningu hans höfum við ákveðið að setja upp sjóð í hans nafni sem mun renna til ungs og efnilegs jaðarsportsiðkanda í kringum 10. Desember sem er afmælisdagur Arnars.

Okkur vantar endilega einhverja duglega til að hjálpa við að setja upp jibb svæðið dagana áður. Áhugasamir sendið mail á sumarlina@gmail.com með nafni og síma.

Um kvöldið verður svo Afterski-partý !!! (staðsetning auglýst síðar)

Air & Style, Innsbruck

Red Bull Supernatural

Vilt þú verða nýr formaður BFÍ?

Ég vil endilega minna alla sem hafa áhuga á að taka þátt í starfinu okkar að það er ekki of seint að bjóða sig fram, það má alltaf hafa samband við Sumarlina@gmail.com

Og vil en ítreka að þeir sem hafa áhuga á að taka að sér formennsku BFÍ þá verður sú staða laus i Ágúst/September 2012

kv Linda

Skálafell opnar á morgun!

Eflaust eiga margir góðar minningar þaðan!

http://www.skidasvaedi.is/desktopdefault.aspx/tabid-24/122_read-475/

Next entries »
Nikita Clothing