Archive for Hjólabretti
Tíser að nýrri Heimildarmynd um Skate
Þetta er lítill tíser að nýrri heimildarmynd um hjólabretti. það verður farið í gegnum sögu brettamenningunar á íslandi og þessari stanslausu baráttu brettafélag reykjavíkur og sýna almenningi að menningin sé löngu komin til að vera!! þessi mynd er enn í tökum enn langaði að sýna ykkur smá demó og fyrir ykkur sköturnar sem hafið eitthvað athygglisvert að segja þá er um að gera að vera í bandi við Gunna og Sverrir,
gunnar-o@hotmail.com s:8696185, sverrir73@hotmail.com s: 6976381
Meira skate
Emil, Sölvi og Krissi eru ungir skeitarar sem tóku þetta upp í sumar og sendu mér þeir eru svo að vinna í að klippa part 2
Hvet alla til að senda mér fréttir, myndir og klippur af því sem þið eruð að gera
kv Linda
Fundargerð Aðalfundar.
Árlegur aðalfundur BFÍ var haldinn í gær og hér er létt yfirlit yfir hvað var farið yfir:
Síðasta vetur byrjuðum við á því að halda Innanbæjar Jibb session, eitt var haldi í breiðholtsbrekkunni og á sama tíma var session bak við skautahöllinn á Akureyri í tilefni World snowboard day
Ný síða sett upp í byrjun Jan þar sem gamla síðan þótti of dýr í rekstri.
Um svipað leyti var Brettafélag Akureyrar stofnað, Viktor fékk stöðu í Hlíðarfjalli og sá til þess að mjög glæsilegt park var sett upp á Akureyri og brettaskóli, þeir hafa svo haldið nokkur innanbæjar session sem heppnuðust vel.
Við skelltum okkur tvisvar á Siglufjörð og fengum fullt af púðri í bæði skiptinn.
Bláfjalladagurinn var haldin í fyrsta skipti þar sem BFÍ var með létta kennslu og brettasession.
Íslandsmeistaramótið haldið á Akureyri, keppt í slopestyle í 16 ára og yngir stráka, 16 ára og eldri karlar og stelpu flokk, mikil þáttaka og allir fóru ánægðir heim. Á föstudeginum var opið halfpipe session ( úrslitinn má finna á síðunni )
Snæfó session tókst ekki eins vel og við hefðum viljað en fólk skemmti sér samt mjög vel, við höfum ákveðið að hafa það seinna á næsta ári í von um að fá betra veður.
E-H pallar voru settir upp í Bláfjöllum og mikil jarðvegsvinna var gerð sumarið 2008, Boxin munu koma upp veturinn 2009-2010 ( þau eru s.s tilbúin og koma upp um leið og parkið )
Meðlimir í stjórn BFÍ hafa einnig unnið í hinum og þessu t.d stelpur skate session, aðstoðað við X-leikana í eyjum og aðstoðað við uppbyggingu í Skateparkinu sem er á vegum BFR. Ingó hefur einnig verið að kenna á Brimbretti og má finna upplýsingar um það á surf.is.
Veturinn 2009-2010
Stærstu pólarnir verða einsog í fyrra:
- Íslandsmeistara mót keppt í slopestyle og boardercross í 3 Flokkum 16+,16- og Stelpu
- Snæfó session veður seinna í ár í von um betra veður
- Sigló session amk eitt ef ekki tvö
- Bláfjalladagurinn, verður mun stærri í ár og við erum að vinna í því að vera með stórt boðs/sýningarmót þar sem keppendur verða að taka þátt í undanúrslita móti til að mega keppa á sýningarmóti
- Minni session f. Sunna, norðan og vonandi fleiri stöðum
- Stofnun fleiri brettafélaga, t.d f. vestan, austan osf.
- Flott park sett upp í Bláfjöllum boxin koma og grundvöllur fyrir því að vera með starfsmann í fjallinu sem sér um parkið ( þetta er þó en í vinnslu )
- Parkið sett upp í hlíðarfjalli einsog í fyrra
- Félagaskrá og félagskort ( nánari upplýsingar munu koma á síðuna fljótlega)
- Brettaskóli ( en í vinnslu f. sunnan en á Akureyri verður hann með sama sniði og í fyrra)
Svo munum við halda fleiri session og viðburði eftir því sem tími, fjármagn, veður og snjókoma leyfa.
Stjórn er einsog hér segir
Formaður : Linda
Ritari: ? ( við erum en að leita að einhverjum Tölvu “nörd” til að vera ritari, ef þið hafði áhuga endilega sendið póst á Sumarlina@gmail.com ) Bjarki þar til e-h getur tekið við.
Bláfjallarnefnd : Ingó, Hreinn og Krissi
í vetur viljum við endilega fá e-h fleiri til að taka þátt í einstaka verkefnum og jafnvel fá framtíðarstjórn brettafélagsins til þess að taka þátt í því sem við ætlum að gera í vetur og komast aðeins inn í starfið. Við munum auglýsa eftir fólki og biðjum við ykkur að fylgjast vel með og vera óhrædd við að taka þátt. Eitt er þó vert að nefna, það er 18 ára aldurstakmark í ferðir og því verður að vera 18 ára aldurstakmark í stjórn. En þeir sem yngri eru mega endilega bjóða fram aðstoð.
Svo vill ég að lokum minna alla á að árskortin í Bláfjöllum kosta 17.000kr f. áramót og hækka upp í 20.000kr eftir áramót.
Í Hlíðarfjalli eru árskortin á 23.000kr en ef fjórir kaupa saman kosta þau 18.000kr.
kv Linda
Skyldi það vera Jólabowl?
Herferðin bowl fyrir jól er komin af stað og eru starfsmenn skateparksins og aðrir sjálfboðaliðar sveittir í að undirbúa Jólabowlið, hér koma nokkrar myndir af herlegheitunum. Stefnt er á að hægt verði að sk8a bowlið í jólafríinu eða um 20.des. Smíðin heldur áfram og verður byrjað að leggja pípuna í pallinn um 11.des. Þangað til hvetjum við fólk til að skella sér í parkið og hitta sig upp á minirampinum og míkrórampinum sem eru þegar til staðar. Eins og allir eða enginn veit þá er parkið opið alla daga, virka daga frá 17-22 og 13-18 um helgar. við höldum áfram að smíða og leifum ykkur að fylgjast með.
sjáumst þegar við sjáumst, ef við sjáumst….
Smá video SPAM
ég er ekki frá því að þetta sé besti mini ramp partur sem ég hef séð.
svo er bara að vera dugleg í vetur að mæta í parkið.
Fréttir

