Archive for Brimbretti

Fundargerð Aðalfundar.

powder.jpgÁrlegur aðalfundur BFÍ var haldinn í gær og hér er létt yfirlit yfir hvað var farið yfir:

Síðasta vetur byrjuðum við á því að halda Innanbæjar Jibb session, eitt var haldi í breiðholtsbrekkunni og á sama tíma var session bak við skautahöllinn á Akureyri í tilefni World snowboard day

Ný síða sett upp í byrjun Jan þar sem gamla síðan þótti of dýr í rekstri.

Um svipað leyti var Brettafélag Akureyrar stofnað, Viktor fékk stöðu í Hlíðarfjalli og sá til þess að mjög glæsilegt park var sett upp á Akureyri og brettaskóli, þeir hafa svo haldið nokkur innanbæjar session sem heppnuðust vel.

Við skelltum okkur tvisvar á Siglufjörð og fengum fullt af púðri í bæði skiptinn.

Bláfjalladagurinn var haldin í fyrsta skipti þar sem BFÍ var með létta kennslu og brettasession.

 Íslandsmeistaramótið haldið á Akureyri, keppt í slopestyle  í 16 ára og yngir stráka, 16 ára og eldri karlar og stelpu flokk, mikil þáttaka og allir fóru ánægðir heim.  Á föstudeginum var opið halfpipe session ( úrslitinn má finna á síðunni )

Snæfó session tókst ekki eins vel og við hefðum viljað en fólk skemmti sér samt mjög vel, við höfum ákveðið að hafa það seinna á næsta ári í von um að fá betra veður.

E-H pallar voru settir upp í Bláfjöllum og mikil jarðvegsvinna var gerð sumarið 2008, Boxin munu koma upp veturinn 2009-2010 ( þau eru s.s tilbúin og koma upp um leið og parkið )

Meðlimir í stjórn BFÍ hafa einnig unnið í hinum og þessu t.d  stelpur skate session, aðstoðað við X-leikana í eyjum og aðstoðað við uppbyggingu í Skateparkinu sem er á vegum BFR.  Ingó hefur einnig verið að kenna á Brimbretti og má finna upplýsingar um það á surf.is.

Veturinn 2009-2010

Stærstu pólarnir verða einsog í fyrra:

  • Íslandsmeistara mót keppt í slopestyle og boardercross í 3 Flokkum 16+,16- og Stelpu
  • Snæfó session veður seinna í ár í von um betra veður
  • Sigló session amk eitt ef ekki tvö
  • Bláfjalladagurinn, verður mun stærri í ár og við erum að vinna í því að vera með stórt boðs/sýningarmót þar sem keppendur verða að taka þátt í undanúrslita móti til að mega keppa á sýningarmóti
  • Minni session f. Sunna, norðan og vonandi fleiri stöðum
  • Stofnun fleiri brettafélaga, t.d f. vestan, austan osf.
  • Flott park sett upp í Bláfjöllum boxin koma og grundvöllur fyrir því að vera með starfsmann í fjallinu sem sér um parkið ( þetta er þó en í vinnslu )
  • Parkið sett upp í hlíðarfjalli einsog í fyrra
  • Félagaskrá og félagskort ( nánari upplýsingar munu koma á síðuna fljótlega)
  • Brettaskóli ( en í vinnslu f. sunnan en á Akureyri verður hann með sama sniði og í fyrra)

Svo munum við halda fleiri session og viðburði eftir því sem tími, fjármagn, veður og snjókoma leyfa.

Stjórn er einsog hér segir

Formaður : Linda

Ritari: ? ( við erum en að leita að einhverjum Tölvu “nörd” til að vera ritari, ef þið hafði áhuga endilega sendið póst á Sumarlina@gmail.com ) Bjarki þar til e-h getur tekið við.

Bláfjallarnefnd : Ingó, Hreinn og Krissi

í vetur viljum við endilega fá e-h fleiri til að taka þátt í einstaka verkefnum og jafnvel fá framtíðarstjórn brettafélagsins til þess að taka þátt  í því sem við ætlum að gera í vetur og komast aðeins inn í starfið. Við munum auglýsa eftir fólki og biðjum við ykkur að fylgjast vel með og vera óhrædd við að taka þátt. Eitt er þó vert að nefna, það er 18 ára aldurstakmark í ferðir og því verður að vera 18 ára aldurstakmark í stjórn. En þeir sem yngri eru mega endilega bjóða fram aðstoð.

Svo vill ég að lokum minna alla á að árskortin í Bláfjöllum kosta 17.000kr f. áramót og hækka upp í 20.000kr eftir áramót.

Í Hlíðarfjalli eru árskortin á 23.000kr en ef fjórir kaupa saman kosta þau 18.000kr.

kv Linda

Nóg að gera

Þó svo að það sé komin July er nóg af snjó að finna um allt land, þegar við forum á snæfellsjökul í byrjun Juní var en lokað yfir til Ólafsfjarðar vegna þess hve mikil snjór var á jöklinum og sama má segja um Kelló .

Síðan er náttulega skate senan í fullum gangi núna, ég fann þetta myndband á netinu þó ég viti ekki eftir hvern það er fannst mér endilega að það eigi að birtast hér.

Ef e-h eiga myndir frá Go Skate eða bara sumrinu meiga þeir endilega senda mér á sumarlina@gmail.com

Hér er svo  Ragnar Bragason sem er að gera það gott í surfinu

ATIKIN í NOLAND

NOLAND verður með ATIKIN í sumar og voru vörurnar að lenda hjá þeim í gær á laugardagin verður svo ATIKIN/NOLAND partý stemmning í búðinni.  Fyrir þá sem ekki fara til eyja gæti þetta verið málið dressa sig upp í Atikin fyrir sumarið!

Atikin Horsin Around from Atikin Clothing on Vimeo.

Hér eru svo fleiri ATIKIN vídeó

Ef brettafélagið er ekki að sjá fyrir öllum þínum þörfum núna þá veit ég ekki hvað!

Munið eftir uppboðinu hans Eika hér að neðan og nælið ykkur í flott stuff fyrir veturinn!

UPBOÐSLEIKUR EIKA!

Ég ættla að prófa gera smá uppboðs leik hérna! og sjá hvort það sé einhver áhugi fyrir þessu.

pakki2_0.jpg

Hann virkar þannig ad þið getið boðið í þennan pakka (Ef þið viljið hann?) með því ad skrifa verðið sem þið eruð til í (og hafið efni á) að borga fyrir hann og emailið ykkar:
Dæmi:
Eiki Helgason:
júní 4th, 2009 03:46
100000kr.  eichvad@hotmail.com
og sá sem byður mest fær Hann, Ekki Flókið !?!?

Svo þegar ég sé ad fólk vilji ekki bjóða hærra þá sendi eg honum sem bauð mest email og kem Pakkanum til Hanns.

þetta eru allt 2010 vörur og allt Ónotað nema Brettið en eg fór 3 sinnum á það og bara á snjó þannig ad það er alveg eins og nytt enþá…

Svona lítur Pakkinn út:

1. Bretti: Rome Artifact 1985, 147
2. Úlpa: Oakley, Large
3. Buxur: Oakley, Large
4. Peysa: Oakley, XLarge
5. Bolur: DVS, Large
6. Húfa: Frontline
7. Hanskar: Rome
8. Headphones: Skullcandy
9. Bling Bling: Skullcandy, Gull med Demöntum (Samt bara Fake en Cool)
10. Límmida Pakki.

Byrjunnar verð er: 100000kr.

Rétt verð á þessum Pakka ef hann væri panntaður frá Netinu er í kringum: 250000kr + Flutningur og Skattur = $$$$$$$

Ef þetta verður vinsælt þá mun eg gera fleiri svona Pakka.

þá er bara að byrja!!!

// Eiki Helgason.

Lámarkshækkun er 500kr og uppboðinu lýkur 19.Júní

Árlegu Eyja-X leikarnir í Eyjum!

n613851399_1840452_2275.jpg Jæja þá er komið að X-Game, eða eins nálægt því og við komumst hérna á Íslandi.  þetta verða þriðju Eyja-X leikarnir sem eyjamenn halda og er óhætt að segja að dagskráinn sé feit.

Á höfninni verður water park með aparólu, slip and slide sem endar á kicker úti í sjó,  það verða 3 kickerar í heildina og keppt verður í double backflip á  BMX útí sjó!  Það verður líka “snjór á höfninni” og jib braut.  Á laugardaginn verður svo skate session á römpunum, og eftir það verður skate grillveisla. Síðan er náttúrulega bara málið að kíkja í smá sprang og sund. Síðan á laugardags kvöldið er sjómannadags ballið og af því sem ég hef heyrt þá er það möst. Það kostar 2500kall inn á það eða 8000kr ef farið er í matinn líka.

Þetta er bara hlutu af dagskráni sem boðið verður upp á, hægt er að sjá alla dagskána á eyjafréttir.is 

upplýsingar um hvernig á að komast til útlanda.

Herjólfur fer 2 ferðir á dag, hann fer kl 11:30 og svo aftur kl 19:00, ferðin er á 2490kr á man og ef fólk ætlar á bíl þá er það 2490kr auka en þá mælum við með að fólk hringi á undan og panti pláss.

Það er fægt að gista á tjaldsvæðinu, það er 700kall nóttin eða t.d á gistiheimilinu Sunnuhóll og þá er nóttin á 3500kall, síminn þar er 4812900.

Já og fyrir þá sem eiga blautbúning að taka hann með.

Gleðilegt Sumar!

Nokkur myndbönd í tilefni dagsins..

..og nei það veður ekki IPP í ár en við munum reyna að vera með ferð á snæfó og nokkra palla!

Old skúl skate er bara of svalt!

aðeins of sweeeeet!

Ný Jaðarsport’s síða

Hann Lexi var að senda mér eftirfarandi email

Nú er komin nýr íslensku vefur www.hrollur.is sem er hálfgert „Youtube“ fyrir íslenskt jaðarsport eingöngu.
Þetta er opið öllum allir geta sett inn á mjög auðveldan hátt sínar klippur, af sínu sporti.
Svo er sér hluti fyrir „allt bullið“ sem oft verður í kringum mörg sportin.

Hvet alla til að hlaða upp sínum myndböndum í góðum gæðum, komum okkur á framfæri innanlands.

Endilega sendið honum efni og fyrir þá sem vilja má líka alltaf senda mér sumarlina@gmail.com eða Bjarka bjarkih@gmail.com efni sem við setjum inn á brettafelag.is

 

kv Linda

Nikita Clothing Rauka