Mikið um þjófnað á brettum í bláfjöllum
Síðastliðinn sunnudag var 5 brettum stolið í bláfjöllum skv. honum Jakob sem sendi mér póst. Brettið hans var burton dominant(159) 2007 með hvítum burton bindingum einnig var stolið burton Bullet, Custom og 2 önnur burton bretti.
Við viljum hvetja alla til að fá sér brettalása og skifa niður raðnúmerið á brettunum svo hægt sé að sannreina hver er eigandinn. Það er að sjálfsögðu fyrir neðan allar hellur að stela brettum í fjallinu !
Ef einhver sér brettið hans Jakobs eða hin brettin endilega hafið samband við okkur og við komum því til skila.
En að gleðilegri fréttum í dag var einn mesti púður dagur aldarinnar í bláfjöllum ! Og stefnir í annan eins á morgun þannig að það er um að gera að skella sé í fjöllin.
Ég vill minna alla á frægu setninguna sem fylgdi með öllum seldum brettum í Týnda Hlekknum í gamla daga.
það er betra að taka sér 5 mínotur til að fara yfir brettið heldur en að tapa heilum deigi í fjallinu ( hún var allavega e-h svo hljóðandi)
Vaxa, fara yfir allar skrúfur og vera síðan safe í fjallinu. Vill lika minna alla á að fara ekki út fyrir skíðasvæðin nema að vera með snjóflóða ýli og allan öryggis búnað.
Fréttir

Loksins er hin langþráða síða brettafélagsins komin upp! Á nýju síðunni munu birtast upplýsingar um allt sem tengist brettasportum á Íslandi, snjóbretti hjólabretti, surf og einnig upplýsingar um freestyle hjólasession, wakeboard of