Archive for febrúar, 2009

Nokkrar myndir frá Ingó B…

Back country session á AK..

btw.. myndir frá Öskudagsskeiti koma von bráðar…

Video frá Sigló

Nokkrir hressir akureyringar mættu á sigló og settu saman myndband af ferðinni tékk it…

Öskudags’skate

bananiskate.jpg

Öskudagsdjamsession á Miðvikudagin  feb.

Allir sem mæta í grímubúning fá frítt inn ( hattur og varalitur er ekki nóg) verðlaun fyrir besta gallan og kötturinn svo slegin úr tunnunni. Nammi fyrir syngjandi skötur í búning. Junior Parkið verður tilbúið og allt að gerast, MÆTTU OG TÆTTU

Opið frá 17:00-22:00

Skateparkið er á gatnamótum Vesturgötu og Seljarvegs.

Ný Jaðarsport’s síða

Hann Lexi var að senda mér eftirfarandi email

Nú er komin nýr íslensku vefur www.hrollur.is sem er hálfgert „Youtube“ fyrir íslenskt jaðarsport eingöngu.
Þetta er opið öllum allir geta sett inn á mjög auðveldan hátt sínar klippur, af sínu sporti.
Svo er sér hluti fyrir „allt bullið“ sem oft verður í kringum mörg sportin.

Hvet alla til að hlaða upp sínum myndböndum í góðum gæðum, komum okkur á framfæri innanlands.

Endilega sendið honum efni og fyrir þá sem vilja má líka alltaf senda mér sumarlina@gmail.com eða Bjarka bjarkih@gmail.com efni sem við setjum inn á brettafelag.is

 

kv Linda

Sigló

IMG_2060.JPG

Sigló sessionið búið og allir komu skælbrosandi heim þrátt fyrir að lyfturnar hafi bilað í tæpa tvö tíma á laugardagin. Það var nóg af snjó á sigló og púður fyrir þá sem mættu tímanlega svo kom rigning og fraus en við gátum komið pallinum í gott horf og tókum gott session.  Einsog vanalega völdum við Best rider, best trick og best slamm.  Best rider yngri var Gunni Ú. best rider eldri var Sindri , best slamm fékk heima maðurinn Heimir og best trick fékk Old School Arana þeir voru allir leystir út með veglegum vinningum frá Brim og Cintamani búðinni.

Ég heyrði í Viktori í gær og það er meira en nóg að gerast í hlíðarfjalli, þeir eru að setja upp flottasta park sem hefur verið á íslandi og okkur hlakkar öllum til að halda Íslandsmeistara mót þar í apríl.

Næsta session verður svo 13-15 mars á Sauðárkrók sem verður með svipuðu sniði og Sigló sessionið við munum auglýsa tilboð og fleira varðandi það fljótlega.

Hreinn og Ingó skelltu sér svo á snæfellsjökul fyrir tveim vikum og sóttu þanngað rail sem við erum nú að vinna í svo hægt sé að koma þeim fyrir í bláfjöllum. Nú rignir öllum snjó í burtu hér á höfuðborgarsvæðinu þannig að enginn bláfjallar session eru á döfinni fyrr en hitastigið lækkar e-h.

En það er opið í skateparkinu og styttist í næstu ferð norður!

Myndir frá Sigló

Jæja hérna koma fyrstu myndirnar frá Sigló. Ef þið eigið einhverjar myndir sem þið viljið að við setjum hérna inn þá er bara að senda þær á mig bjarkih@gmail.com

Sigló og spjallið

powder.jpg Nú er all verulega farið að styttast í Sigló. Eftir að hafa talað við Lindu í gær þá er það alveg 100% að þetta er eitthvað sem maður vill ekki missa af. það er víst bara púður og sæla þarna. Stór partur af stjórninni fór á Sigló á þriðjudag til að hafa nægan tíma með troðara og gera allt klárt.
Ég verð nú samt að viðurkenna að ég spurði Lindu ekki út í hvað þau voru búin að gera því ég var svo sár að heyra að þarna væri bara púður og allir að fara yfirum af gleði, þannig að ég sagði bara bless.

Síðan langar okkur líka að prufa að setja upp spjall vef þar sem hægt er að tala um allt og ekkert og einnig er hægt að auglýsa eftir brettum og búnaði eða selja gamla draslið.

Einnig hefur borið á spurningum um hvernig eigi að tengja mynd við profile-in sinn þannig að hér er smá leiðbeiningar.

1. farið á Gravatar og gerið nýjan notenda þar, þessi notandi þarf að vera með sama email og notað var á síðu brettafélagsins.

2. setjið inn mynd á Gravatar og þá er þetta komið.

Hugsunins er sú að þú skráir bara inn mynd þarna og svo mun hún koma fram á öllum þeim síðum sem styðja gravatar svo maður þurfi ekki alltaf að vera að uppfæra profile mynd.

EDIT:  Var að fá þær fréttir að það væri búið að gera einn bigjump með tveim lipum og að hann væri mega sweet. Svo eru líka tvö rail kominn upp og tvö plast rör. Eftir fjallið á laugardaginn verður sundlauginn opnuð fyrir okkur.

Laugardags session-ið verður í boði Nikita, Brim og Cintamani svo það er um að gera að mætta og eiga séns á að fá gefins dótt frá þeim.

Kv
Bjarki Heiðar

Fréttir

Jæja þá er sessionið í hlíðarfjalli búið, vonandi gátu allir fengið sér pylsur, kók og rennt sér í parkinu. Ég filmaði eitt run og klippti það saman eld snökkt þannig að þetta er ekki beint fallegt en virkar,

Svo fann ég hérna 1-2 ára gamlar klippur og ákvað að skella þeim inn líka.
Gamlar klippur.

Svo var ég lika að heyra aðeins í Halldóri og hann gerði sér lítið fyrir og lenti í 2 sæti í Ripcurl Rail session.
Fékk hann 2000 þúsund evrur sem er bara frábær árangur hjá honum.
Rip Curl Rail session 1

Rip Curl Rail session 2
Gulli vann síðan Redbull Warm up, sem er upphitunar keppni fyrir Air and Style og fékk hvorki meira né minna en surf ferð til Bali.

Gulli vann ferð til bali!

Eiki er svo staddur í michigan að filma fyrir nýju mack dawg myndina og vonandi gengur bara vel þar. Hann var síðan valin Rookie of the year af Snowboarder mag og mér skildist á Eika að hann hafi líka unnið european rookie of the year hjá Snowboarder MBM.

Snowboarder rookie of the year

Vildi bara óska strákunum til hamingju með þetta og halda áfram að rústa þessum keppnum.

Jæja ætli þetta sé ekki bara gott í bili.

Viktor.

Park Opnun Hlíðarfjalls.

flida.jpg

Sælir strákar og stelpur,

Við í brettafélaginu á Akureyri ætlum að halda Park Opening Session á föstudaginn næsta. Þetta verður bara chill session með góðri músik, grill, pylsur og kók.

Parkið verður komið í gott form með 8-10 rails í line niður allt suðurgilið ásamt 1-2 góðum Kickerum.

Allir að drífi sig í Hlíðarfjall 6 febrúar næstkomandi frá 16:00 til 19:00!!

Ný Íslensk Skate mynd frumsýnd!

Skatemyndin Bland í poka verður frumsýnd 7 feb kl 20:00 í skateparkinu, 500 kall inn

Next entries »
Nikita Clothing Rauka