STELPU SKATE SESSION
Laugardagin 9 maí frá 18:00-21:00 verður stelpu skate session í parkinu!
Hvet allar stelpur til að mæta hvort sem þær hafi skeitað áður eða langar bara að prófa.
Nánari upplýsingar koma í byrjun næstu viku
Laugardagin 9 maí frá 18:00-21:00 verður stelpu skate session í parkinu!
Hvet allar stelpur til að mæta hvort sem þær hafi skeitað áður eða langar bara að prófa.
Nánari upplýsingar koma í byrjun næstu viku
Því miður höfum við ákveðið að aflýsa sessioni á sigló um helgina og spara kraftana fyrir snæfó session í byrjun júní. Bæði var áhugin ekki mikil og tímasetninginn ekki hentug.
Það er samt nóg af snjó á sigló og ég hvet alla þá sem langar að renna sér að kíkja þanngað um helgina.

Þá er það ákveðið að við verðum á sigló næstu helgi, en mig langar að biðja sem felsta að taka þátt í könnunni okkar hér að neðan til þess að ákveða hvort við verðum með Boardercross mót eða ekki. Og til að vita sirka hversumargi koma til með að taka þátt. Við munum setja upp e-h palla hvort sem það er bardercross mót eða ekki.
En vonandi getum við sett upp braut og mini park f. föstudag þannig að allir ættu að geta tekið langa helgi í rennsli.
Vil líka taka fram að myndin sem fylgir fréttinni var tekin á sama tíma í fyrr þegar við rendum okkur í 15 stiga hita,logni,sól og nóg af snjó. Það er en meiri snjór nú en í fyrra og góð spá fyrir helgina!
Við erum að byrja að vinna í því að vera með ferð á Sigló næstu helgi 1-3 maí og halda jafnvel boardercross mótið þá. En þetta er ekki alveg 100% ég set inn frétt um leið og þetta er allt neglt niður.
Nokkur myndbönd í tilefni dagsins..
..og nei það veður ekki IPP í ár en við munum reyna að vera með ferð á snæfó og nokkra palla!
Old skúl skate er bara of svalt!
aðeins of sweeeeet!
Hér eru myndir af íslandsmeisturum og Alexander sem vann best trick, reyndar vantar Fanney en hún fékk staðgengil á myndunum og einnig af Danna sem tók best trick í pæpinu..
Þá er Íslandsmeistarmótið í slopestyle afstaðið og búið að krýna nýja íslandsmeistara.
Þar að auki voru veitt verðlaun f. best trick og það var Alexander með nosepress 2 back lip á langa reilinu og Danni Magg með best trick í pæpinu MacTwist 7.
Danni fékk 20l Dakine bakpoka og Alexander fékk Smith googlur.
Lexi og Ingó fengur 10þ króna gjafabréf frá Brim ásamt hönskum og húfu frá Dakine.
Beggi og Ísak fengu 6þ króna gjafabréf frá Brim ásamt húfu frá Dakine
Gunnar og Danni fengu svo 4þ króna gjafabréf frá Brim og húfu frá Dakine.
Í stelpur flokk færðust fyrstu verðlaun í annað sæti og önnur verðlaun í þriðja sæti
Linda
Fanney fékk snjóbretta jakka og buxur frá Nikita
Andrea fékk jakka, bol og húfu frá Nikita.
Myi fékk svo Bol og belti f. besta slamm þar sem hún datt sennilega úr alxlarlið og poppaði aftur í hann.
Brettafélagið vill svo þakka :
Starfsmönnum Hlíðarfjalls
Brettafélagi Akureyrar þá sérstaklega Viktori, Aron, Danna og Einari sem stóður sig ótrúlega vel við að byggja parkið !
Húsinu Akureyri ( Mumma f. hjálpina og Ingó B f. að redda myndunum)
Pabba hans Viktors f. að grilla ofaní okkur og hlíðarfjalli f. hamborgarana
Vífillfell f. gosið
Nikita, Brim, Dakine og Smith f. vinningana
Þar sem við gátum því miður ekki klárað boardercross mótið erum við að skoða möguleika á að vera með það á siglufirði e-h á næstunni það er þá ekki víst en um að gera að fylgjast með.
Slope style 15 ára og yngri
1.Lexi 38
2.Beggi 36
3.Gunnar 35
4.Dagbjartur 33
5.Viðar 25
6.Rúnar 24
7-8.Almar og Alexander 23,5
9.Solon 23
10.Gunnar B 22,5
11.Steinar 19,5
12.Eiríkur 17,5
13.Ágúst 11,5
14.Sigrjón 10,5
15.Aðaldsteinn 9,5
Slopestyle stelpur
1.Linda 24
2.Fanney 19,5
3.Andrea 17
4.Þórunn 14
5.Myi 10
Strákar 16 ára og eldri
Gulli Guðmunds. 45
1.Ingó B 40
2.Ísak 39
3.Danni 34
4.Páll 33
5. Einar 29
6-8. Árni Ingi/Hreinn/Gunnar Viðar 28
9-10 Sölvi/Aron 26
11. Otti 25
12. Hákon 24
13. Sindri 22
14. Siggi 21
15-16. Krissi/Atli 19
17. Steinar 16
Halfpipe sessionið í dag var mjög gott og þáttaka góð, það er geggjað veður á AK og nóg af snjó, á morgun er mjög góð spá þannig að slopestylemótið verið í slush og sól. Allt er klárt og mótið byrar 11:30 skráning 10 einsog fyrr segir.Mæst er með því að undir 16 ára komið með skirflegt leyfi frá foreldrum þar sem allir sem taka þátt verða á eigin ábyrgð
Sjámust öll í fyrramálið þangað til….
Við erum búin að vera hér í bongó blíðu við undirbúning f.mótið sem hefst á morgun, í slopestyle brautinni eru 8 rail og 5 palla. Planið er að vera með eitt rail run og eitt palla run ef tími gefst til verður svo eitt frí run. Uphitun verður frá 10-11:30 og eftir það byrjar mótið. Skráning hefst 10:00 í neðri skálanum. Hlafpipe sessionið er frá 16:00-19:00 í dag. Ég vil hvetja alla til að skoða pallana vel og fara eftir sinni eigin getu í stökkunum.- Upplýsingar um Boardercross koma á morgun.
Update: Viljum hvetja stelpur til að taka þátt þar sem við erum með feita vinninga frá nikita.
vonumst til að sjá sem flesta.
Þar sem parkið og pæpið er allt í vinnslu fyrir mótið, þá er búið að loka öllu saman og vildi ég koma því á framfæri að allir brettamenn renni sér ekki í parkinu né pæpinu fyrr en allt er tilbúið.. það er svo heitt eins og er í fjallinu að ef við færum að renna okkur að þá myndi allt bráðna mjög hratt. Því bið ég ykkur að segja öðrum frá þessum og passa það að engin renni sér þangað til allt er 100% ready to go.
Það fer of mikil vinna í að þurfa shape-a allt tvisvar og vona ég að þið skiljið þetta
Annars er hérna smá taste af því sem koma skal
Þessi er reyndar ekki tilbúin en þetta er góð byrjun.