Archive for maí, 2009

Snæfó

Því miður var of mikil þoka alla helgina til þess að hægt væri að gera palla en svona er þetta stundum við munum hugsanlega bæta þetta upp með öðru sessioni seinna í sumar. Ég vona þó að allir sem mættu skemmtu sér vel.

SNÆFÓ ER ON!

Jæja nú ættu allir að fara og pússa tjaldhælana vaxa brettin og redda sér surf græjum því að snæfó er ON!

Hvítasunnuhelgina 29maí-1jún.

 NIKITA kom okkur til bjargar og styrkti okkur um það sem upp á vantar. Við ætlum að setja upp 2-3 palla og e-h rail ef þau eru í lagi. Það mun kosta 1.500kr í parkið þannig að allir þurfa að koma með pening með sér.

 fyrir þá sem hafa áhuga á að fara í troðaraferð eða vilja gista á gistiheimilinu má finna upplýsingar hér en það er þó lang einfaldast að tjalda við Arnarstapa

Parkið verður á sama stað og í fyrra ef allt gengur að óskum en ég mun reyna að setja upplýsingar hér inn þegar við erum komin uppeftir og getum staðfest hvernig þetta lýtur allt saman út.

Snæfó

Smá update varðandi snæfó, það mun kosta okkur 50þ krónur að fá troðarana til að gera palla og við erum að vinna í að redda pening. Þetta mun því allt koma í ljós í vikunni.

Fréttir

Stelpu skate sessionið heppnaðist mjög vel um 20 stelpur mættu og skeituðu stanslaust frá sex til að verða hálf tíu.

Við erum svo að vinna í snæfó sessioni sem verður í lok maí byrjun júní, við eigum en eftir að sjá hvaða möguleikar eru fyrir hendi varðandi park en í versta falli verður hóp útilega!

Hvetjum alla til að fylgjast vel með.

Stelpu skate update

skt.png

Jæja þá er session að nálgast, það verða óvæntir glaðningar og jafnvel hægt að ná sér í bol á MJÖG hagstæðu verði

Partýið byrjar svo klukkan 21:30 á prikinu og verður hægt að fá sér stóran á 490 og hitt á 350

Við ætlum að reyna að vera með skeit myndi í gangi og það verður pottó mega stemmari!

Strákarnir mega endilega mæta í partý og geta mætt í skate parkið til klukkan 6, eftir það er að sjálfsögðu girls onlý!

Factor Films.

Nýji trailerinn hjá Factor Films, They Came From er kominn á netið og þar eru auðvitað Halldór, Eiki og Gulli fremstir í flokki.

Njótið.

Viktor.

Factor Films – They Came From

Stelp skate session

skt.png

Jæja stelpur nú er loksins komið að því, alvöru stelpu skate session í skateparkinu ( gatnarmótum Vesturgötu og Seljarvegs) laugardaginn 9. Maí frá sex til níu.
500 kall inn ( komið með cash)
Allar stelpu velkomnar, við verðum með leiðbeinendur á staðnum bæði fyrir þær sem eru ný byrjaðar (eða jafnvel ekki byrjaðar)
og þær sem eru lengra komnar. Hvatningar verðlaun frá NIKITA
Fyrir þær sem hafa aldur til verður after-skate partý á prikinu þar sem Addi Intro mun trylla lýðinn

Látum nú sem flestar sjá okkur og sýnum hvað í okkur býr GIRLS KICK ASS!

Nikita Clothing Rauka