Archive for september, 2009

Snjóflóð

Ótrúlegt video sem ég varð að deila með ykkur, minnir jafnframt á hvað það er mikilvægt að vera með ýla, skóflur, stangir og fólk sem kann að nota þær þegar renna sér á of pist.. einsog fram kemur líka í textanum að meta aðstæður áður en farið er að renna sér:

Avalanche Skier POV Helmet Cam Burial & Rescue in Haines, Alaska from Chappy on Vimeo.

Parkið opnað aftur

skate09

Skateparkið opnar laugardagin 3okt frá 14:00-20:00 opnunar tími í vetur verður svo 13:00-18:00 um helgar og 17:00-22:00 á virkum dögum. Það kostar 500kr inn og mánaðarkortin verða líklegst tilbúin um helgina. Það styttist í að bowlið verði tilbúið og er annar minni mini rampur á leiðinni.

Nýtt frá Eika!

http://www.romesnowboards.com/shredtv/view/89

Video partur frá Einari R.

Hitt og þetta

Nú styttist í að brettafélagið verið með árlegan aðalfund sinn og kosið verður í eftirfarandi.

Formaður
Ritari
Bláfjallanefndarmaður 1
Bláfjallarnefndarmaður 2

Stefnan okkar í vetur er að setja félagið upp þannig að það sé einn formaður með yfirumsjón á félaginu, einn ritari sem myndi sjá um heimsíðuna, facebook og þannig og Tveir aðilar sem myndu vinna sérstaklega með bláfjöllum við að sjá til þess að það sé park til staðar og fylgjast með að pallarnir séu í lagi.

Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram verða að vera 18+ og hafa mikin áhuga á að starfa í félaginu. Það krefst mikilar vinnu og allt unnið í sjálfboðastarfi.

Ég hvet alla til að hugsa sig vel um fyrir aðalfundinn sem verður haldin fljótlega.

Við ætlum að reyna að setja upp meira samstarf við ITR og stofna í raun Snjóbrettafélag Reykjavíkur þannig að við gætum jafnvel fengið meira fjármagn inn í félagið og gert eh innanbæjar viðburði.

Brettafélag Akureyrar mun svo halda sinn árlega fund fljótlega og munu þeir auglýsa það nánar hér.

Ef einhver fleiri félög hafa áhuga á að vera innan brettafélags Íslands hvet ég þau eindregið til að hafa samband við okkur þannig að sem mest af brettatengdum upplýsingum séu aðgengilegar á sama stað og til þess að við höldum svipaðri stefnu.

í öðrum fréttum mun skateparkið mun opna næstu mánaðarmót.

Hér eru tvö video…

Hann Ásgeir Þór sendi inn skate klippur sem hann hefur verið að taka í ár:

Nikita búðin opnar 26 sep

Nikita Flagship Store Teaser from Nikita Clothing on Vimeo.

Ég vil hvetja alla sem eiga e-h efni en og aftur um að senda mér á Sumarlina@gmail.com

kv Linda

Nikita Clothing Rauka