Archive for nóvember, 2009

AÐALFUNDUR

HVAÐ: AÐALFUNDUR

HVAR: KAFFI RÓT HAFNARSTRÆTI

HVENAR : 3. DES KL. 20:00

aðalfundur

Aðalfundur brettafélags Íslands verður haldin á neðri hæð kaffi rót í hafnarstræti klukkan 20:00, 3. desember.

Farið verður yfir helstu plön næsta árs og litið yfir síðasta ár.

Við viljum hvetja alla til að mæta á fundinn og koma með sínar skoðanir verið óhrædd við að spurja eða stinga upp á því sem betur má fara. Aðalfunurinn er staðurinn til að koma sýnum málefnum á framfæri!

Við munum líka vera að leyta að upprennandi stjórnendum brettafélagsins og e-h sem hafa áhuga á að aðstoða í vetur við hinar ýmsu uppákomur.

Sjáumst 3 des klukka 20:00 Mætið tímanlega

Skyldi það vera Jólabowl?

Herferðin bowl fyrir jól er komin af stað og eru starfsmenn skateparksins og aðrir sjálfboðaliðar sveittir í að undirbúa Jólabowlið, hér koma nokkrar myndir af herlegheitunum. Stefnt er á að hægt verði að sk8a bowlið í jólafríinu eða um 20.des. Smíðin heldur áfram og verður byrjað að leggja pípuna í pallinn um 11.des. Þangað til hvetjum við fólk til að skella sér í parkið og hitta sig upp á minirampinum og míkrórampinum sem eru þegar til staðar. Eins og allir eða enginn veit þá er parkið opið alla daga, virka daga frá 17-22 og 13-18 um helgar. við höldum áfram að smíða og leifum ykkur að fylgjast með.

sjáumst þegar við sjáumst, ef við sjáumst….

Verður snjór í vetur?

 

Samkvæmt eftir farandi verður ekki snjór heldur NóG af honum.

Ég las þessa grein í sumar sem útskýrir það hvernig snjór virkar og kemur líka inn á hvernig El Nino vindarnir hafa áhrifa á snjókomu annarstaðar í heiminum.  Og í vetur er El Nino vetur ! Einsog segir í greininni getur snjókoma orðið allt at 25% meiri en aðra vetur.

El nino hefur líka áhrif á öldu stærð þannig að það verður risa surf í vetur !

Ég ætla að reyna að ná í e-h hjá veðurstofunni og sjá hvað þeir hafa um þetta að segja, svo það er um að gera að fylgjast með.

GAME OF S-K-A-T-E

Laugardagin 21.Nóv verður Game of S-K-A-T-E í parkinu klukkan 14:00

BRETTI í VERÐLAUN!

Aðgangur 500kr, frítt fyrir meðlimi BFR.

 

gameofskatenov09

SELJA/KAUPA

Vill minna alla á sölu korkinn á umræðunni, endilega setjið inn auglýsingar, ég veit að það verða margir að leita sér að notuðum brettum í vetur.

Snjóbrettaklippur frá Nýja Sjálandi.

http://www.sweet-life.org

Nikita Clothing Rauka