Archive for febrúar, 2010

Brettamót í Hlíðarfjalli

Á Laugardaginn 27 febrúar verður haldið Brettamót í Hlíðarfjalli.

Þetta verður Bigjump mót með einum kicker/palli.

Þetta verður tvískiptur pallur svo flest allir ættu að geta tekið þátt.

Brettafélag Akureyrar ætlar að vera með 2 aldursflokka í þessu 16 og yngri og 17 og eldri.

Ef það verður nægilega þáttaka verður líka stelpu flokkur þannig að ég mæli með að sem flestar reyni að mæta.

Ég ætla að reyna að redda einhverjum verðlaunum fyrir þetta mót en það er ekki alveg 100% að það verður.
Ef ég næ ekki að redda vinningum þá verður þetta bara Glory og status og skemmtun fyrst og fremst.

Ef næg þátttaka verður í flestum flokkum verða 3 run/stökk á mann og 2 bestu gilda. 5 bestu úr hverjum hóp fara áfram í final og þar fá þeir 2 run til að sanna sig og besta stökkið gildir.

Við í brettafélagi akureyrar erum að þessu aðallega til að sameina aðeins brettafólkið og hafa það gaman. Ef veður verður leiðinlegt þá breytum við þessu bara í session og allir fá að leika sér eins og þeir vilja.

Klukkan 9 um kvöldið verður svo Brettabíó í Rósenborg í gamla Brekkuskóla og sýnd verður einhver skemmtileg brettamynd.

Allir að mæta kátir í hlíðarfjall um helgina og skemmta sér.

ÉG VIL MINNA ALLA Á AÐ ÞAÐ ER HJÁLMA SKYLDA Á MÓTINU!!!

Eiki með forsíðuna á Transworld !

Ódýr brettaferð til Ítalíu á vegum Hemma og Valda

 

Hemmi og Valdi lofa stuði og stemmningu í skíðaferð Escape.
Eigendur Nýlenduvöruverzlunar Hemma og Valda standa fyrir skíða- og brettaferð til Ítalíu um næstu helgi.Verðið er fáránlega lágt enda áhersla lögð á fleiri lyftuferðir frekar en lúxus.
„Við erum að tala um flug, rútuferðir, gistingu á þriggja stjörnu hóteli, morgunverð og kvöldverð í viku á 109.000 krónur, það er fáránlega lágt verð,“ segir Valdimar Geir Halldórsson hjá Nýlenduvöruverzlun Hemma og Valda sem stendur fyrir skíðaferð til Ítalíu í samstarfi við Vita.
Flogið verður til Verona á Ítalíu þann 20. febrúar og dvalið í smábænum Pagella í viku. Bærinn er næsti bær við eitt frægasta skíðasvæði Evrópu, Madonna.
 
Ódýr lyftupassi og greiðari aðgangur í lyfturnar
„Þar sem svæðið er mun minna og alls ekki eins vinsælt og Madonna þá höfum við greiðari aðgang að lyftunum auk þess sem lyftupassinn kostar aðeins 110 evrur á meðan hann kostar 240 evrur í Madonna,” segir Valdi. Hann bendir þó jafnframt á það að þó svæðið sé smátt miðað við Madonna þá sé það risastórt á íslenskan mælikvarða. Þar eru t.d. tveir kláfar, brettagarður, ótal stólalyftur og hæsti toppur er 300 metrum hærri en Hvannadalshnúkur. 
Ferðin er líka frábrugðin skíðaferðum stóru ferðaskrifstofanna að því leyti að hópurinn mun fara sem einn hópur og vera sem einn hópur og munu tveir úr hópnum sjá til þess að halda stemmingunni uppi og hópnum saman. Einnig mun hópurinn hittast áður en lagt er í hann og eftir að komið er heim.
 
 
Verslunin Brim ætlar að gefa þriðja hverjum sem að bókar sig Billabong Reykjavík bol, svo munu allir sem fara fá 30% afslátt af brettafatnaði í Brim
 
Annars má fá allar nánari upplýsingar um ferðina á facebook síðu Escpae.
 
Hér er svo hægt að bóka sig VITA

Myndir af boxunum í bláfjöllum sem bíða eftir Snjó

Öskudagsskate í skateparkinu

Myndband frá strákunum í Trailer park studios

Getting Memories from AT on Vimeo.

Endilega kíkið á síðuna þeirra á trailerparkstudios.net

Nikita Clothing Rauka