Minnum á Make it count næstu helgi!
MAKE IT COUNT er alþjóðleg hjólabrettakeppni sem haldin er um öll Bandaríkin, Kanada, Ástralíu og Evrópu.
“Íslands-mótið” fer fram í Reykjavík Skatepark þann 20 mars og hefst skráning kl 15:00 þann dag.
Keppnin sjálf hefst síðan kl 16:00.
Keppendum er skipt í tvo flokka; 13 ára og yngri og 14 ára og eldri.
Glæsileg verðlaun eru síðan veitt fyrir efstu sætin í hvorum flokk fyrir sig.
50 fyrstu sem skrá sig fá frían Element bol og allir fá Element límmiða
Aðal verðlaunin í löndum Evrópu er ferð og þáttaka á Evrópu-úrslitamóti sem haldið verður í Belgíu 29 maí.
Brim mun því í samstarfi við Element senda sigurvegarann til Belgíu í það mót.
Addi Intro verður á spilurunum og mun sjá til þess að bullandi stuð verði á svæðinu.
Svo mun enginn annar er Diddi Fel Sjá um að kynna herlegheitin.
Keppt verður á ákveðnum hlutum eða “obstacle” í einu og svo skippt yfir á næsta..
Allir áhorfendur eru velkomnir frítt að sjálfsögðu, um að gera að mæta, styðja sýna og bara skemmta sér!!!
Fréttir
