Hemmi og Valdi lofa stuði og stemmningu í skíðaferð Escape.
Eigendur Nýlenduvöruverzlunar Hemma og Valda standa fyrir skíða- og brettaferð til Ítalíu um næstu helgi.Verðið er fáránlega lágt enda áhersla lögð á fleiri lyftuferðir frekar en lúxus.
„Við erum að tala um flug, rútuferðir, gistingu á þriggja stjörnu hóteli, morgunverð og kvöldverð í viku á 109.000 krónur, það er fáránlega lágt verð,“ segir Valdimar Geir Halldórsson hjá Nýlenduvöruverzlun Hemma og Valda sem stendur fyrir skíðaferð til Ítalíu í samstarfi við Vita.
Flogið verður til Verona á Ítalíu þann 20. febrúar og dvalið í smábænum Pagella í viku. Bærinn er næsti bær við eitt frægasta skíðasvæði Evrópu, Madonna.
Ódýr lyftupassi og greiðari aðgangur í lyfturnar
„Þar sem svæðið er mun minna og alls ekki eins vinsælt og Madonna þá höfum við greiðari aðgang að lyftunum auk þess sem lyftupassinn kostar aðeins 110 evrur á meðan hann kostar 240 evrur í Madonna,” segir Valdi. Hann bendir þó jafnframt á það að þó svæðið sé smátt miðað við Madonna þá sé það risastórt á íslenskan mælikvarða. Þar eru t.d. tveir kláfar, brettagarður, ótal stólalyftur og hæsti toppur er 300 metrum hærri en Hvannadalshnúkur.
Ferðin er líka frábrugðin skíðaferðum stóru ferðaskrifstofanna að því leyti að hópurinn mun fara sem einn hópur og vera sem einn hópur og munu tveir úr hópnum sjá til þess að halda stemmingunni uppi og hópnum saman. Einnig mun hópurinn hittast áður en lagt er í hann og eftir að komið er heim.
Verslunin Brim ætlar að gefa þriðja hverjum sem að bókar sig Billabong Reykjavík bol, svo munu allir sem fara fá 30% afslátt af brettafatnaði í Brim
Annars má fá allar nánari upplýsingar um ferðina á facebook síðu Escpae.
Hér er svo hægt að bóka sig VITA
Fréttir
Þetta verður örugglega stuð, en það er ástæða fyrir því að passinn sé dýrari í madonna, 240 evru passinn nær yfir nærliggjandi svæði líka, þá erum við að tala um mjög stórt svæði sem þú getur skíðað á, tala nú ekki um Ursus Snowpark í gröste, mjög skemmtilegt park