Brettamót í Hlíðarfjalli

Á Laugardaginn 27 febrúar verður haldið Brettamót í Hlíðarfjalli.

Þetta verður Bigjump mót með einum kicker/palli.

Þetta verður tvískiptur pallur svo flest allir ættu að geta tekið þátt.

Brettafélag Akureyrar ætlar að vera með 2 aldursflokka í þessu 16 og yngri og 17 og eldri.

Ef það verður nægilega þáttaka verður líka stelpu flokkur þannig að ég mæli með að sem flestar reyni að mæta.

Ég ætla að reyna að redda einhverjum verðlaunum fyrir þetta mót en það er ekki alveg 100% að það verður.
Ef ég næ ekki að redda vinningum þá verður þetta bara Glory og status og skemmtun fyrst og fremst.

Ef næg þátttaka verður í flestum flokkum verða 3 run/stökk á mann og 2 bestu gilda. 5 bestu úr hverjum hóp fara áfram í final og þar fá þeir 2 run til að sanna sig og besta stökkið gildir.

Við í brettafélagi akureyrar erum að þessu aðallega til að sameina aðeins brettafólkið og hafa það gaman. Ef veður verður leiðinlegt þá breytum við þessu bara í session og allir fá að leika sér eins og þeir vilja.

Klukkan 9 um kvöldið verður svo Brettabíó í Rósenborg í gamla Brekkuskóla og sýnd verður einhver skemmtileg brettamynd.

Allir að mæta kátir í hlíðarfjall um helgina og skemmta sér.

ÉG VIL MINNA ALLA Á AÐ ÞAÐ ER HJÁLMA SKYLDA Á MÓTINU!!!

18 athugasemdir »

febrúar 23rd, 2010 18:02

gott framtak. ég vil sjá myndir af þessu hingað inn, eftir mótið :)

hversu stórir eru kickerarnir?

febrúar 23rd, 2010 20:19

Pallarnir verða í kringum 4 metrar og 10 metrar.. það fer samt algjörlega eftir aðstæðum. Langar auðvitað alltaf að gera eins stórt og mögulegt er en aðalmálið er að gera langa og góða lendingu.

Reynum að taka einhverjar fínar myndir og skella þeim inn eftir mótið.

febrúar 23rd, 2010 20:19

Það á eftir að gera pallana.

Ég verð þarna vonandi með vélina á lofti, ef ég fæ leyfi frá vinunni ;)

febrúar 23rd, 2010 21:50

verður maður að skrá sig ? þá hvar og hvenar eða verður þetta bara að mæta ?

febrúar 23rd, 2010 22:14

og hvenar á svo að gera pallinn aðví það er ekki buin að vera neinn pallur þennan vetur og maður ekki geta æft sig neitt fyrir svona mót þannig það væri þæginlegt ef hann væri gerður svona 2 dögum fyrir þannig að það sé hægt að æfa sig aðeins :)

febrúar 24th, 2010 08:29

Heyrðu það verður skráning hjá pallinum klukkan 10:30.

Pallurinn verður gerður á fimmtudaginn og kláraður á föstudaginn býst ég við. Svo nei það verður engin æfing bara beint í keppni. En þetta á líka bara að vera skemmtilegt. Ekkert serious olympics dæmi með æfingum og læti hehe ;) En auðvitað verður pallurinn opin eftir þetta en á meðan keppni stendur verður hann lokaður öllum nema keppendum.

Þ.e.a.s. allan laugardaginn verður hann bara opin keppendum.

febrúar 24th, 2010 15:29

heyrðu heyrðu nice en ein spurning í viðbót , hvar verður pallurinn ? :)

febrúar 25th, 2010 02:24

aahh, hefði veirð til i meiri fyrirvara

febrúar 25th, 2010 15:32

Já þessi pallur verður bara þar sem íslandsmeistarmótið í slopestyle var í fyrra í hlíðarfjallli. Sunnan megin við Fjarkan. Og ég gat bara ekki staðfest þetta mót fyrr en svona seint þar sem ég var ekki viss hvort ég hefði tíman í að skipuleggja þetta mót. Er í skóla líka og vinn með skólanum en með mikilli hjálp hlíðarfjalls, skipuleggjendum vetraríþróttahelgarinnar og fólki úr brettafélagi akureyrar virðist þetta allt saman ætla að ganga upp.

Vinnsla í pallinum fer í gang í dag og verður framm á föstudagskvöld þannig að þetta verður bara rétt svo tilbúið fyrir keppnina en ég held að þetta verði engu að síður skemmtilegt.
vet sem flesta til að reyna mæta, enda á þetta bara að vera skemmtun og ekkert annað. Koma saman og renna okkur.

Gaman að segja líka frá því að eftir að eiki, halldór og gulli fóru að gera það svona svakalega gott í brettaheiminum hafa íslenskir fjölmiðlar heldur betur tekið við sér og heyra í mér með reglulega millibili.

Sömuleiðis má segja um hlíðarfjall sem hefur staðið sig frábærlega í að reyna að halda uppi parki og einhverri aðstöðu. Svo er skíðasamband íslands að sýna okkur áhuga og hjálpa brettafélaginu með þetta mót þannig að Snjóbretti eru loksins að fá áhuga frá öðrum aðilum en okkur “core” fólkinu sem er bara snilld!

febrúar 26th, 2010 18:14

Hvar á að skrá sig og klukkan hvað byrjar keppnin??

febrúar 26th, 2010 18:15

vantar snjóbretta buxur og úlpu ef eithver er að selja , hægt að hafa samband á beggid@hotmail.com

febrúar 27th, 2010 03:41

Skráning f.mótið verður klukkan 10:00 til 11:00 á pallinum sem keppt verður á.

Það kostar ekkert að vera með en það er hjálma skylda!

Pallurinn er LOKAÐUR fyrir þá sem ekki eru að keppa!

febrúar 27th, 2010 18:25

hvar koma mindir af þessu aðvi sá gaur sem tók mindir af öllum stökkum langar4 bara að vita hvert þær mindir fara ef þú veist það :)

febrúar 27th, 2010 22:52

ég tók eithvað af myndum, en ekki eru allar nothæfar og þarf að vinna þær aðeins til.
set inn eithvað af þeim við tækifæri.

kv. grétar

febrúar 28th, 2010 01:24

nice

febrúar 28th, 2010 10:31

http://www.flickr.com/photos/28604887@N06/

það eru nokkrar inná þessum link, ég veit að þetta er ekkert spes myndir enda er ég ekki sáttur við sjálfann mig út af þeim. og auk þess þá vantar mig betra myndvinnsluforrit.

en hvað með það, þetta sýnir eithvað.

febrúar 28th, 2010 18:48

hvenar verður næsta mót og hvar

mars 1st, 2010 18:28

eitt annað, hvernig seturu mynd á profilinn þinn ?

Þú þarft að vera innskráður til að skrá athugasemd.

Nikita Clothing Rauka