Um Brettafélagið
Brettafélag Íslands var stofnað árið 2001 til þess að gæta hagsmuna snjóbrettafólks og gefa þeim rödd,
Við höfum unnið hörðum höndum að því að koma upp góðri aðstöðu fyrir snjóbrettafólk í samstarfi við stærstu skíðasvæði landsins og er sú vinna að skila miklu síðustu árin og meira með hverju árinu. Helstu markmiðin okkar eru að koma upp almennilegri aðstöðu ásamt því að halda mót og viðburði yfir veturinn.
Á síðastliðnu ári höfum við einnig þróast í þá átt að stíla inn á að aðstaðan í fjallinu sé einnig fyrir freestyle skíðafólk , tekið þátt í að setja upp hjólabrettamót, brimbrettadag og freestyle hjólamót.
Fyrir nánari upplýsingar eða ef þú hefur e-h fram að færa sendu þá email á Sumarlina@gmail.com
Stjórn Brettafélagsins 2009 eru:
Formaður Linda Björk Sumarliðadóttir
Ritari Bjarki Heiðar Ingasson
Meðstjórnendur, Ingólfur Olsen, Hreinn Heiðar Halldórsson, Sigurður Brynjarsson og Guðmundur Hrafn Jakobsson.
Umsjónarmenn Brettafélags Akureyrar eru Sindri og Hákon AKA wildcats.
Engar athugasemdir en þá
Lokað er fyrir athugasemdir eins og er.
Fréttir